03.01.1940
Neðri deild: 99. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 693 í B-deild Alþingistíðinda. (1222)
95. mál, gengisskráning og ráðstafanir í því sambandi
Forseti (JörB) :
Mér hafa borizt tvær skrifl. brtt. við brtt. á þskj. 673. Önnur er frá hæstv. viðskmrh. (EystJ) við 3. tölul. b, og er þess efnis, að í stað orðsins „kaupgjald“ komi: launagreiðslur, — og er það aðeins orðabreyt. Hin skrifl. brtt. er frá hv. 5. þm. Reykv. (EOl), sem nú hefir verið lýst, og er um það, að á eftir 1. málslið í staflið b í 3. tölul. brtt. komi svo hljóðandi málsliður: Þó má ekki hækka kaup þeirra manna, sem hafa 10 þúsund krónur eða meira í árslaun.