29.12.1939
Neðri deild: 96. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 716 í B-deild Alþingistíðinda. (1276)

3. mál, bráðabirgðatekjuöflun ríkissjóðs og jöfnunarsjóðs bæjar- og sveitarfélaga

Frsm. (Sigurður Kristjánsson); Herra forseti! Fjhn. leggur til, að frv. þetta verði samþ. En samkv. ósk hæstv. fjmrh. leggur n. til, að bætt sé í 4. gr. frv. einum lið í viðbót sem undanþágu frá þessum 11% skatti. En það er ekki af innlendum tollvörutegundum. Þetta er ekki annað en leiðrétting á frv. Og fjhn. óskar eftir, að hv. þd. samþ. þessa brtt.