14.12.1939
Efri deild: 84. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 769 í B-deild Alþingistíðinda. (1465)

66. mál, laxveiði í Nikulásarkeri

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):

Ég hefi fátt eitt um þetta frv. að segja. Það er aðeins um afnám l. nr. 43 frá 7. maí 1928, þar sem getið er þess, að leyfð sé stangveiði í þessu keri. Eins og sjá má á grg. frv. , er þetta frv. fram komið til þess að fyrirbyggja misskilning, og er frv. búið að fá samþykki Nd. N. hefir orðið sammála um að mæla með því, að frv. verði samþ. hér í d. óbreytt. — Ég sé svo ekki ástæðu til að hafa fleiri orð um þetta, en vonast eftir að hv. d. samþ. frv.