15.12.1939
Neðri deild: 84. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 796 í B-deild Alþingistíðinda. (1500)

29. mál, hegningarlög

*Forsrh. (Hermann Jónasson):

Eins og hv. þm. Barð. hefir tekið fram, voru þessar brtt. bornar fram af allshn. til þess að sníða af frv. ýmsa brodda, er einstakir þm. töldu sig finna á því. Ég get sagt fyrir mitt leyti, að enda þótt ég teldi frv. í sinni upphaflegu mynd ekki ganga of langt í þeim atriðum, sem hér er lagt til að breyta, þá get ég vel fallizt á brtt. n.