21.03.1939
Neðri deild: 23. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 63 í B-deild Alþingistíðinda. (154)

26. mál, sala Höfðahóla o.fl.

*Frsm. (Jón Pálmason) :

Eins og sést á nál.

landbn. á þskj. 64, þá hefir n. orðið sammála um að mæla með því, að frv. nái fram að ganga með þeim einu breyt., að námuréttindi í landi Höfðahóla séu undanskilin, þegar sala fer fram.

Ég sé ekki ástæðu til að bæta við það, sem ég sagði við 1. umr., nema sérstök andmæli komi fram gegn því, að málið nái fram að ganga.