16.12.1939
Efri deild: 86. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 811 í B-deild Alþingistíðinda. (1565)

110. mál, vegalagabreyting

Frsm. (Páll Hermannsson):

Þetta frv. hefir legið fyrir samgmn., og fjallar um það, hvort eigi að greiða bætur fyrir jarðrask, sem orsakast af vegalagningu. Þar er gert ráð fyrir því, að þeir greiði bæturnar, sem að öðru leyti kosta verkið. Samgmn. leggur til, að frv. verði samþ.