13.12.1939
Neðri deild: 82. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 903 í B-deild Alþingistíðinda. (1761)

155. mál, friðun Eldeyjar

*Bjarni Ásseirsson:

Ég vil að gefnu tilefni árétta þá fyrirspurn til hæstv. stj., hvar sé komið framkvæmd þál. þeirrar, er ég bar hér fram fyrir tveim eða þrem árum og var samþ., um að láta endurskoða fuglafriðunarl. Þál. þessi var samþ. með öllum greiddum atkv., ef ég man rétt, en síðan hefir ekkert komið fram um málið, og vildi ég gjarnan vita, hvað því líður.