18.12.1939
Neðri deild: 86. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1005 í B-deild Alþingistíðinda. (1980)

128. mál, heilbrigðisnefndir og heilbrigðissamþykktir

Frsm. (Vilmundur Jónsson) :

Ég vil leyfa mér að skýra frá því, að allshn. leggur til, að frv. verði samþ. að heita má óbreytt, eða aðeins með breyt. þeim, er getur á þskj. 472, sem ekki þurfa skýringar við. Ég vil einnig geta þess, að í frv. eru tvær smávægilegar prentvillur, önnur í 1. og hin í 3. gr. frv., sem ég mun vekja athygli skrifstofunnar á.

Ég vona, að frv. fái sömu afgreiðslu í hv. deild og í nefndinni.