14.04.1939
Efri deild: 39. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1021 í B-deild Alþingistíðinda. (2007)

22. mál, tollskrá

Frsm. (Magnús Jónsson) :

Þar sem þessum brtt. hefir ekki verið útbýtt fyrr en nú á fundinum, eftir að ég var búinn að tala, hefi ég ekki getað athugað þær nema mjög lauslega. Þar sem þær eru allmargar og sérstaklega þar sem þær hafa nú verið teknar aftur til 3. umr., mun ég ekki ræða um þær frekar að svo komnu.