11.12.1939
Neðri deild: 80. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1086 í B-deild Alþingistíðinda. (2163)

85. mál, skattgreiðsla útgerðarfyrirtækja

Skúli Guðmundsson:

Ég vil út af því, sem hv. þm. Borgf. sagði, taka fram, að vitanlega ráða hv. meðflm. mínir, hvað þeir gera í þessu efni, en ég get ekki fallizt á að taka till. aftur, og ég vona fastlega, að hún spilli ekki fyrir þessu máli. Ég hefi ekki orðið þess var og geri ekki ráð fyrir, að ágreiningur verði um, að þetta ákvæði verði sett í l., svo að ég vænti fastlega, að málið nái fram að ganga, þó að þessi brtt. verði samþ.