22.12.1939
Efri deild: 91. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1090 í B-deild Alþingistíðinda. (2202)

165. mál, rannsóknarstofnun í þarfir atvinnuveganna

*Árni Jónsson:

Ég mun eindregið halda mér við till. um það, að vísa öllum þessum málum til n., vegna þess að hér varð mikil andúð gegn meðferð á þessum málum. Þm. eiga ekki að gefa tilefni til frekari andúðar með því að vísa þessum málum ekki til viðkomandi n., og ættu heldur að reyna að láta þau sæta þinglegri meðferð í deildinni.