22.12.1939
Efri deild: 91. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1091 í B-deild Alþingistíðinda. (2203)

165. mál, rannsóknarstofnun í þarfir atvinnuveganna

*Erlendur Þorsteinsson:

Hv. 9. landsk. hefir tekið mest það fram, sem ég ætlaði að segja. Ég tók það fram í dag, að þótt fjhn. hafi fyrir beiðni ríkisstj. flutt þessi mál, hefir hún ekki haft þau til meðferðar. Hér er um að ræða breyt. á gildandi l., og er ég eindregið með því, að þessu máli og þeim, sem á eftir eru á dagskránni, verði vísað til viðkomandi n.