02.01.1940
Neðri deild: 97. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1120 í B-deild Alþingistíðinda. (2275)

112. mál, meðferð einkamála

*Frsm. meiri hl. (Bergur Jónsson) :

Meiri hl. allshn., þ. e. a. s. allir nm. nema hv. 7. landsk. þm., leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt. Okkur virðist svo, að hér sé um réttarbót að ræða, þar sem fylgt verður sömu reglum um þá menn, sem hafa fengið rétt til þess að flytja mál í hæstarétti áður en l. um einkamál í héraði voru sett. Ég legg þess vegna til, að frv. verði samþ. óbreytt.