17.03.1939
Neðri deild: 21. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1142 í B-deild Alþingistíðinda. (2339)

35. mál, hlutarútgerðarfélög

*Einar Olgeirsson:

Ég ætla ekki að ræða frv. við þessa umr., en langar aðeins til út af þessu nýmæli að beina þeirri fyrirspurn til hv. flm., úr því að á að lækka kaup þeirra, sem í landi vinna í sambandi við þessa útgerð, hvort ekki væri þá réttara að byrja á þeim endanum, sem digrari er, sem sé bankastjórunum, þeim mönnum, sem hæstv. forseti d. flutti till. um fyrir 6 árum síðan að lækka launin á.