09.12.1939
Efri deild: 80. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1220 í B-deild Alþingistíðinda. (2433)

118. mál, framfærslulög

Þorsteinn Þorsteinsson:

Ég vildi aðeins geta þess, að þar sem hv. frsm. allshn. hefir tekið aftur 8. brtt. á þskj. 375 til 3. umr. og hefir óskað eftir, að ég tæki brtt. mína á þskj. 410 aftur, þá skal ég verða við þeirri ósk, og tek hana hér með aftur. Mér þykir vænt um, ef allshn. fengi aðra betri lausn á málinu.