19.12.1939
Neðri deild: 87. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1238 í B-deild Alþingistíðinda. (2465)

118. mál, framfærslulög

Einar Olgeirsson:

Það er nú búið að eyða 1½ tíma í að ræða um svartbakinn, svo ég held, að það sé óhætt. að mönnum gefist annar eins tími til þess að ræða um þetta mál. Ég vil því eindregið óska eftir, að annar eins tími verði gefinn til þess að ræða um þetta mál eins og gefinn var til þess að ræða um svartbakinn.