11.04.1939
Neðri deild: 38. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 83 í B-deild Alþingistíðinda. (249)

64. mál, tekjur bæjar- og sveitarfélaga

*Bergur Jónsson:

Hv. þm. Snæf. var frsm. í þessu máli. En ég vil aðeins geta þess, að allshn. hefir komið sér saman um að bera fram við frv. brtt. á þskj. 128, sem ganga í þá átt, að atvmrh. verði heimilað að skipa eftirlitsmann sveitarstjórnarmálefna, sem starfi í atvinnumálaráðuneytinu. Og í samræmi við það eru hinar aðrar brtt. á þessu sama þskj.