03.01.1940
Neðri deild: 101. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1277 í B-deild Alþingistíðinda. (2566)
164. mál, fiskimálanefnd
*Emil Jónsson:
Hæstv. atvmrh. talaði um, að það myndi möguleikar á því að gera skipulagsbreyt. á þessari n. Ég vil þá spyrja: hvers vegna ekki að gera skipulagsbreytingu á öðrum hliðstæðum n.? Ég skil ekki, hvers vegna liggur svo mjög á að koma þessu máli í gegn nú á síðustu nótt þingsins. Mér fyndist þá langsamlega eðlilegast, að gerðar væru breyt. á fleiri hliðstæðum n. Ég get því ekki skilið, að neinu væri sleppt, þó að þetta frv. yrði fellt.