03.01.1940
Neðri deild: 101. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1277 í B-deild Alþingistíðinda. (2567)

164. mál, fiskimálanefnd

*Atvmrh. (Ólafur Thors) :

Ég vil aðeins taka það fram út af því, sem hv. þm. sagði, að það hefir ekki unnizt tími til þess ennþá að gera till. um breyt. á öðrum n. þann stutta tíma, sem ég hefi verið atvmrh. Hinsvegar mætti telja það til bóta, ef hægt væri að spara útgjöld á þann hátt að fækka í öðrum slíkum n. Ég tel samt. að það beri að samþ. þessa breyt., og vænti þess, að það verði gert.