25.04.1939
Efri deild: 51. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1315 í B-deild Alþingistíðinda. (2631)

Afgreiðsla mála úr nefndum

Brynjólfur Bjarnason; Ég vildi nota tækifærið og spyrjast fyrir um, hvort hv. allshn. hafi athugað frv. það, sem hér var samþ. til 2. umr. og vísað til allshn., um meðalmeðgjöf og bætur vegna gengisfallsins. Hafi n. ekki fjallað um það enn, þá vil ég mælast til, að hún geri það strax, svo það geti komið á dagskrá á næsta fundi.