25.04.1939
Efri deild: 51. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1315 í B-deild Alþingistíðinda. (2632)

Afgreiðsla mála úr nefndum

Erlendur Þorsteinsson:

Þar sem hæstv. forseti upplýsir, að hv. allshn. hafi enn ekki skilað nál. um frv. til l. um breyt. á útsvarsl., þá vil ég mælast til, að hún skili áliti um málið, svo það nái fram að ganga, því í frv. eru mikilvæg atriði, sem bæirnir þurfa með vegna innheimtu á útsvörum.