25.04.1939
Efri deild: 51. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1316 í B-deild Alþingistíðinda. (2634)

Afgreiðsla mála úr nefndum

Brynjólfur Bjarnason:

Ég vil endurtaka áskorun mína til n. um að afgr. þetta mál sem fyrst. Í sambandi við útgjöldin vil ég benda n. á, að í raun og veru er það mál einfalt. Ef gert er ráð fyrir, að ríkissjóður taki aðeins sinn hlut af hækkuninni, þá yrði hans framlag ekki nema 200 þús. kr. til lífeyrissjóðsins.