04.01.1940
Neðri deild: 104. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1345 í B-deild Alþingistíðinda. (2690)

Starfslok deilda

Forseti (JörB) :

Ég vil þakka hv. þdm. góða samvinnu á þessu þingi, eins og ætíð áður. Og sérstaklega þakka ég þeim fyrir það, hvað þeir hafa gert mér auðvelda stjórn funda hér í hv. deild.

Ég óska öllum hv. þdm. góðs gengis og góðrar líðanar, og utanbæjarþingmönnum góðrar ferðar heim til sín og góðrar heimkomu.

Mætumst allir heilir á næsta þingi!