03.01.1940
Neðri deild: 101. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 98 í C-deild Alþingistíðinda. (2836)

152. mál, bráðabirgðaráðstafanir

*Einar Olgeirsson:

Ég hefi reyndar áður rætt þetta frv., en vil þó bæta því við, að mér finnst nóg komið í l. af þessum höggormsákvæðum. Ég mun því ekki greiða atkv. með þessu frv., en vil stuðla að því að koma því fyrir kattarnef. Sumt, eins og ákvæðið um þingtíðindin, hefir verið drepið, og ég vona, að eins fari um önnur ákvæði þessa frv. Ég vildi aðeins gera grein fyrir þessu.