28.12.1939
Neðri deild: 95. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 122 í C-deild Alþingistíðinda. (2881)
56. mál, áfengislög
*Félmrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):
Það kenndi nokkurs misskilnings í ræðu hv. þm. Borgf. Þegar ég talaði í þessu máli áðan, vildi ég aðeins benda á það, hvaða bókstafur væri nú gildandi um þetta. Í bréfi frá allshn. Nd. til utanríkismálan. var spurt um álit utanríkismáladeildarinnar um, hvort frv. þetta myndi koma í bága við gildandi milliríkjasamninga. Niðurstaðan varð sú, eins og sést á nál., að samningar milli Íslands annarsvegar og Spánar og Portúgals hinsvegar frá 1927 hefðu að vissu leyti verið endurnýjaðir með samkomulaginu 1934. Þetta atriði myndi því koma í bága við fyrirmæli frv., og eins og látið var í ljós af hv. þm. Snæf., er þetta skýrt fram tekið. Að öðru leyti þurfti ekki að svara ræðu hv. þm. Borgf., því hann kom ekki inn á þær röksemdir, sem ég hefi fært fyrir því, að samningurinn sé enn í gildi. Þessum samningi hefir ekki enn verið sagt upp og ekkert verið gert af hálfu samningsaðila, sem miði að því að losa um samninginn. Þetta er sú túlkun á málinu, sem mun vera alveg rétt.
Ég bendi á það sem rök fyrir þessari hlið málsins, að síðast á þessu ári var flutt til Spánar mikið af fiski, fyrir alveg sömu tollakjör og samið var um 1923. Við njótum þar hinna beztu tollakjara, og til þess að verða þeirra aðnjótandi, erum við skuldbundnir til þess að verða við kröfu Spánverja um að kaupa eitthvað af vínframleiðslu þeirra.
Ég tel svo, að ekki þurfi að orðlengja þetta frekar, en vil benda á það sem höfuðatriði gegn ákvæðum frv., að þau koma í bága við samninga, sem gilda í dag, og það orkar ekki tvímælis, að þessi ákvæði þurfa breytinga við.