18.04.1939
Efri deild: 43. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 168 í C-deild Alþingistíðinda. (2921)
78. mál, tekjuskattur og eignarskattur af vaxtafé
Frsm. (Magnús Jónsson) :
Þótt hv. þm. hafi komið með þetta dæmi, þá er mér ómögulegt að sjá, hvernig freisting hans til að fella niður framtal getur aukizt við þetta frv. Eins og nú er, þá getur maðurinn dregið undan hvorttveggja, bæði undan tekjuskatti og útsvarsálagningu. En verði frumvarp þetta að lögum, þá ávinnur hann ekki nema helming. Hann getur losnað við útsvarið, en til ríkisins verður hann þá að borga 25% af vöxtum sínum. Ef hann telur nú fram, þá get ég því ekki séð, hvað ætti að draga hann til þess að telja ekki fram, ef þetta frv. verður að l. Freistingin til undandráttar hefir minnkað, en ekki vaxið við þessa lagasetningu. Ég held, að þetta standi eitthvað öfugt í höfði hv. þm. En það þýðir ekki að skattyrðast um þetta frekar.