23.02.1939
Neðri deild: 6. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 215 í C-deild Alþingistíðinda. (3011)

10. mál, dýralæknar

Flm. (Vilmundur Jónsson):

Þetta frv. um dýralækni fyrir Vestfirði er shlj. frv., sem flutt var á síðasta þingi, en fékk þá ekki afgreiðslu. Ég vil aðeins geta þess, að það er flutt samkv. ítrekuðum áskorunum kjósenda minna og síðan annara Vestfirðinga. Það lá í fyrra fyrir landbn., sem tók því vel, þó að ekki ynnist tími til að afgreiða það. Ég vona, að menn verði því enn fylgjandi, og mælist til, að málinu sé, að umr. lokinni, vísað til 2. umr. og landbn.