27.02.1939
Neðri deild: 8. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 220 í C-deild Alþingistíðinda. (3034)

16. mál, vegalög

Flm. (Pétur Ottesen) :

Ég þarf ekki að fara mörgum orðum um þetta frv. Ég hefi flutt það hér áður. Það fer fram á, að gerðar verði nokkrar breyt. á vegalögunum, þannig að teknir verði 3 vegir, sem nú eru sýsluvegir, upp í þjóðvegatölu. Það er gerð grein fyrir því í grg. frv., að þessi till. er í samræmi við þá stefnu, sem fylgt hefir verið í vegamálum að undanförnu. Ég skal ekki fara út í þetta frekar en gert er í grg., en vænti þess, að frv. verði vísað til 2. umr. og samgmn.