17.03.1939
Neðri deild: 21. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 236 í C-deild Alþingistíðinda. (3068)

36. mál, dónþinghá í Holtshreppi

Flm. (Steingrímur Steinþórsson) :

Við þm. Skagf. höfum leyft okkur að flytja þetta frv., að Holtshreppur í Skagafjarðarsýslu skuli vera sérstök dómþinghá, með þingstað að Ketilási. Ég læt mér nægja að vísa til grg., sem fylgir frv., um ástæðurnar fyrir því, að þetta frv. er hér fram borið. — Ég vil svo leyfa mér að leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til allshn.