18.12.1939
Neðri deild: 86. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 242 í C-deild Alþingistíðinda. (3090)
51. mál, jöfnunarsjóður aflahluta
Skúli Guðmundsson:
Ég tók það fram við 2. umr. þessa máls, að ég myndi ljá því stuðning minn með því skilyrði, að Alþingi tæki upp í fjárlög þau útgjöld, sem samþykkt frv. myndi hafa í för með sér. Mér er ekki kunnugt um, að fjvn. hafi tekið nokkra afstöðu til þessa máls, og ég vil því biðja hæstv. forseta um að taka málið út af dagskrá að þessu sinni. Hinsvegar vildi ég mælast til þess, að fjvn. tæki þessi útgjöld, sem myndi leiða af samþykkt frv., með í till. sínar um afgreiðslu fjárlaganna.