24.11.1939
Neðri deild: 67. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 319 í C-deild Alþingistíðinda. (3227)
119. mál, eftirlit með sveitarfélögum
*Félmrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) :
Ég hefi ekki miklu við að bæta. Ég vil aðeins benda hv. 4. landsk. á það, að svo tryggilega er um hnútana búið, að bæjar- og sveitarfélög verða ekki sett undir eftirlit nema fyrir liggi úrskurður um það. Hann tók aftur fram, að honum þætti lítið eftir af sjálfsforræði sveitarfélaganna. Hann gekk framhjá þeirri höfuðstaðreynd. að þegar sveitarfélag er komið í fjárþröng og vandræði, verður ekki komizt hjá því að skerða umráðarétt þess. Hann gat þess, að nýjar kosningar ættu að fara fram, þegar sveitarfélag er komið í fjárhagslega þröng. Hvað eftir annað hafa verið látnar fara fram kosningar á Eskifirði, en þó hefir ástandið lítið skimað. Það er sannarlega ekki allra meina bót, þó að látnar séu fara fram nýjar kosningar. En það er bót meina að gera ráðstafanir um hag sveitarfélaganna. Hv. þm. sagði að lokum, að það væri ekki lýðræði, að taka gjöld af sveitarfélögunum. En hv. þm. ruglar saman lýðræði og skipulagsleysi. Lýðræði er skipulag, en ekki skipulagsleysi. Í þessum málum hefir verið mikið skipulagsleysi, en það er í anda lýðræðisins að setja um þetta fastari reglur en verið hefir undanfarið.