22.04.1939
Efri deild: 46. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 374 í C-deild Alþingistíðinda. (3375)

87. mál, meðalmeðgjöf og tryggingarbætur

Brynjólfur Bjarnason:

Herra forseti! Útbýtt er í dag litlu frv. frá mér um hækkun á bótum samkvæmt tryggingarl., slysabótum, ellibótum og fleiru, ennfremur á barnsmeðlögum. Ég tel mikið undir því komið, að þetta litla frv. nái fram að ganga, áður en þingi er frestað. Hér á að afgreiða ýms mál með afbrigðum, og vil ég því mælast til þess við hæstv . forseta, að þetta frv. verði tekið á dagskrá næsta fundar, sem líklega verður í dag, og afgr. héðan með afbrigðum.