26.04.1939
Sameinað þing: 11. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 33 í D-deild Alþingistíðinda. (3474)

90. mál, ríkisábyrgð á láni fyrir Ólafsfjarðarhrepp

Forseti (HG):

Hv. 1. þm. Árn. hefir óskað eftir, að umr. um þetta mál verði frestað. Ég tel mig ekki hafa rétt til, þar sem gert er ráð fyrir, að þingi verði frestað um leið og þessum fundi lýkur, að verða við þessum tilmælum, nema sýnt sé, að meiri hluti þm. geti fallizt á þessa málsmeðferð. Ég mun því bera það undir þm.