26.04.1939
Sameinað þing: 11. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í D-deild Alþingistíðinda. (3507)

90. mál, ríkisábyrgð á láni fyrir Ólafsfjarðarhrepp

Forseti (HG):

Út af þeim ummælum, sem féllu hjá hv. síðasta ræðumanni, að það væri fyrir áróður, að þetta mál hefði verið tekið á dagskrá, þá vil ég taka það fram, að það er rangt. Það er afleiðing af afgreiðslu þess við fyrri meðferð málsins á þingi.