20.02.1939
Neðri deild: 4. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 22 í B-deild Alþingistíðinda. (38)

7. mál, skuldaskilasjóður vélbátaeigenda

*Sigurður Kristjánsson:

Ég hefi að sjálfsögðu ekkert á móti því, að málið fari til n. En áður en það fer til n., þá vil ég geta þess, að ég er sömu skoðunar um þetta mál og á síðasta þingi, þegar það bar öðruvísi að og var á einkennilegan hátt fellt inn í fjárl. Ég tel óforsvaranlegt, að þetta verði framkvæmt, og mun ég geyma mér rétt, þangað til málið kemur úr n., til þess að gera nánari grein fyrir því.