25.04.1939
Efri deild: 50. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 187 í B-deild Alþingistíðinda. (384)
76. mál, verzlun med tilbúinn áburð og kjarnfóður
*Erlendur Þorsteinsson:
Ég var ekki á þessum fundi í landbn. þegar þetta frv. var til meðferðar og afgreiðslu. En hv. form. landbn. hringdi til mín og lét mig vita um þetta.
Eins og hann skýrði frá, er þetta frv. fram komið að tilhlutun búnaðarþings. En nú stendur svo á, að fyrirhugað er að fresta þessu þingi til haustsins, og þess vegna finnst mér eðlilegt að fresta þessu máli til síðari hluta þingsins í haust, og að þangað til verði leitað umsagnar efnafræðings síldarverksmiðja ríkisins og stjórnar þeirra um það, hvernig hægt muni vera að koma þessu í framkvæmd og hvaða kostnað þetta muni hafa í för með sér. Ég get ekki séð, að þetta geri nokkuð til, enda þótt mjölkaup muni vera gerð fyrir 1. nóvember, því að mjölinu mun ekki vera afskipað fyrr en eftir þann tíma. Mætti því ganga frá þessum l. fyrir þann tíma, er mjölið er sent.
Ég mælist því til þess við hv. 1. þm. N.- M., hvort hann geti ekki fallizt á, að þetta verði gert, til þess að sjá í sumar, hvað hægt er í þessu að gera.