25.04.1939
Neðri deild: 52. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 189 í B-deild Alþingistíðinda. (395)

76. mál, verzlun med tilbúinn áburð og kjarnfóður

*Finnur Jónsson:

Mín till. byggist ekki á því, að ég sé á móti því að setja um þetta lagafyrirmæli. En ég er hinsvegar á móti því að setja um þetta lagafyrirmæli, sem ég tel tæplega framkvæmanleg. Ég held, að hag þeirra, sem kaupa síldarmjölið, sé bezt borgið með því að setja um þetta reglur, sem fyrirfram er vitað, að hægt sé að halda. Þetta tel ég ekki tryggt með frv.