10.03.1939
Neðri deild: 17. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 29 í B-deild Alþingistíðinda. (49)

7. mál, skuldaskilasjóður vélbátaeigenda

Thor Thors:

Þegar þetta frv. var fyrst borið fram, var ég því andvígur og taldi meira en nóg að framkvæma það, sem ákveðið var með fjárlagaákvæðinu. Nú er það hinsvegar upplýst, að það eru tvö félög, sem þessar réttarbætur gætu náð til. Annað er í Vestmannaeyjum, en hitt í Stykkishólmi. Ég hefi ekki kynnt mér, hvernig þetta mál kemur við Stykkishólmsbúa, en ég ætla að nota tímabilið til 3. umr. til þess að kynna mér það og segi því já.

2.–16. gr. samþ. með 15:2 atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 15:7 atkv.