15.02.1939
Sameinað þing: 1. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 9 í B-deild Alþingistíðinda. (5)

Rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Gísli Sveinsson) :

Við fráfall frú Guðrúnar Lárusdóttur losnaði sæti landsk. þm., og átti að taka sæti hennar varamaður af hálfu Sjálfstæðisflokksins, en hann er Magnús Gíslason sýslumaður. Hann er hér mættur, og hefir kjörbréf hans verið athugað. Það er í fullkomnu lagi, og leggur kjördeildin til einróma. að það verði tekið gilt og Magnúsi Gíslasyni úrskurðað hér sæti.