22.03.1939
Neðri deild: 24. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 30 í B-deild Alþingistíðinda. (52)

7. mál, skuldaskilasjóður vélbátaeigenda

*Bjarni Ásgeirsson:

Ég á hér, ásamt hv. þm. Ísaf., brtt. við þetta frv., sem fer í þá átt, að lengja frestinn, sem ákveðinn er í frv., til 1. jan. Hæstv. atvmrh. benti okkur á, að vegna annarra fresta, sem ákveðnir væru í l., mundi vera hæpið, að þau félög, sem enn hafa ekki notið þeirra hlunninda, sem frv. fer fram á þeim til handa, gætu héðan af fært sér þau í nyt fyrir 1. júlí 1939. Er þess vegna nauðsynlegt, til þess að l. nái fyllilega tilgangi sínum, að framlengja frestinn til 1. jan. 1940.