17.04.1939
Efri deild: 41. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 221 í B-deild Alþingistíðinda. (528)
42. mál, útsvör
*Frsm. (Ingvar Pálmason) :
Mér skilst eiginlega, að við séum sammála, hv. 1. þm. Eyf. og ég. Hann tekur mjög undir það, að þörf sé á að breyta útsvarsl. í fleiru en þessu eina atriði, sem þetta frv. fjallar um. En það er einn galli á hans sjónarmiði í þessu sambandi, nefnilega sá, að hann hefir fengið það einhvernveginn inn í höfuðið, að þessi breyt. væri bara gerð með hliðsjón af Siglufirði og viðskiptum útgerðarmanna við Siglufjörð. En þetta er hreinasti misskilningur. veit ekki hv. þm. það, að t. d. frá Austfjörðum eru gerðir út hér við Faxaflóa 10–20 bátar nú, í Vestmannaeyjum um 5 bátar og í Hornafirði milli 20 og 30 bátar? Hvað snertir þetta Siglufjörð? Ég skil ekkert í því, að ekki skuli mega hreyfa breytingum á útsvarslöggjöfinni, án þess að sagt sé, að því sé stefnt að Siglufirði.
Þessu frv. er ekki stefnt að Siglufirði. En ég skal ekki bera á móti því, að það kann að snerta Siglufjörð að einhverju leyti. En ég er því ekki sammála, að rétt sé að láta þetta atriði bíða eftir frekari breyt. á útsvarsl. Hvers vegna er ekki rétt að lagfæra þetta atriði út af fyrir sig, sem er svo auðvelt að lagfæra þannig, sem ekki er annað en að samræma þennan tíma, sem hlutaðeigandi þarf að dvelja í atvinnusveit, til þess að hægt sé að krefjast skiptingar á útsvari hans? Hv. l. þm. Eyf. getur verið rólegur; Siglufjörður hefir hvort sem er sömu réttindi í þessum efnum og Keflavík, Sandgerði, Vestmannaeyjar, Austfirðir o. s. frv.
Ég tók Austfirði til dæmis áðan. En það er vitanlegt, að hér við Faxaflóa stunda veiðar skip ekki aðeins þaðan, heldur líka frá Eyjafirði og vestan af Vestfjörðum. En ég tók dæmið af Austfjörðum af því, að mér var það kunnugast og ég gat vel skýrt það.
Mér finnst alveg sjálfsagður hlutur, hvað sem öðru líður, að þess litla lagfæring verði gerð nú, að færa þetta atriði l. til samræmis við ákvæði l. um aðra atvinnurekendur, enda þótt ég geti viðurkennt að lagfæra þurfi fleira í útsvarsl. En ég get ekki fellt mig við það, að Alþ. ákveði einn skattstiga, sem gildi fyrir alla kaupstaði landsins.
Ég skal vera með hv. 1. þm. Eyf. í því að flytja þáltill. um, að ríkisstj. láti endurskoða útsvarsl. En mér finnst samt sem áður, að þessi hv. þm. geti lofað þessu litla frv. að ganga í friði fyrir sér, þar sem hér er um sanngjarna samræmingu að ræða á útsvarsl. Mér finnst of mikil viðkvæmni hv. 1. þm. Eyf. út af því að færa til þetta tímatakmark. Þessi l., eins og þau eru í þessu atriði, eru ákaflega erfið í framkvæmd og þurfa lagfæringar við.
Vil ég svo vænta þess, að hv. 1. þm. Eyf. ljái þessu litla frv. fylgi sitt í gegnum þingið í þeirri von, að bæði ég og aðrir hv. þm. styðji að því að flýta fyrir, að útsvarslöggjöfin verði endurskoðuð.