22.04.1939
Efri deild: 46. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 233 í B-deild Alþingistíðinda. (552)

42. mál, útsvör

Páll Zóphóníasson:

Meðan hv. frsm. var að halda ræðu sína áðan, var afgr. hingað frv. um breyt. á útsvarslögunum frá hv. Nd. Þess vegna vil ég skora á allshn. að sameina þessi frv. í þann búning, sem hún ætlast til, að þessi mái fái, og á hæstv. forseta að taka málið af dagskrá, svo að allshn. fái tíma til að athuga málin.