24.02.1939
Neðri deild: 7. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 238 í B-deild Alþingistíðinda. (591)

12. mál, raforkuvirki

Flm. (Bjarni Bjarnason):

Þetta litla frv. var flutt á síðasta Alþ., en náði þá ekki afgreiðslu. Með því að frv. fylgir allýtarleg grg. og ég get ekki bætt neinu við rök þau, sem þar eru greind, sé ég ekki ástæðu til að tefja tímann með því að ræða um frv. nú, en vil mælast til þess, að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og iðnn.