01.03.1939
Neðri deild: 10. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 38 í B-deild Alþingistíðinda. (76)
8. mál, námulög
*Héðinn Valdimarsson:
Ég flyt hér brtt. á þskj. 29 við þetta frv.
Því hefir verið lýst, af hvaða ástæðum þetta frv. er fram komið. En mér virðist, að með þessu frv. sé allt lagt í vald ríkisstj. um þessi mál. En sjálfsagt mun verða hugsað um að búa til sérlög síðar, er setja skilyrði fyrir ríkisstj., hvernig þessum málum verði háttað. En þær breytingar, sem ég legg til, að gerðar verði á frv., eru fyrst og fremst viðvíkjandi leigu eða sölu námuréttinda í landareignum kaupstaða, hreppsfélaga, sjóða og opinberra stofnana, sem lúta staðfestingu ráðherra eða neitun, þannig, að ráðuneytið birti samþykki sitt eða neitun í B-deild Stjórnartíðindanna fyrir leigu- eða söluskilmálum, þannig að það sjáist einhverstaðar skjalfest, þar sem allir hafa aðgang að. Því það má gera ráð fyrir, að miklu þyki skipta, hvernig með þessi mál verður farið. Í öðru lagi er brtt. um það, að greinarmunur sé gerður þannig, að ef um málmgraftarleyfi sé að ræða, þar sem búast megi við stóriðju, skuli það veitt með löggjöf, en málmgraftarleyfi, þar sem um minni málmgröft er að ræða, megi ráðherra veita. Nú getur komið fyrir, að um leyfi fyrir málmgrefti í stórum stíl væri að ræða og of langt þætti að bíða með það þar til næsta Alþingi kemur saman, og getur þá ráðh. samþ. það með bráðabirgðal., ef hann býst við samþykki Alþingis fyrir því. Ég hygg meiri tryggingu fyrir því, að þessi leyfi verði veitt á þann hátt, sem ráðuneytið og Alþingi myndu telja tryggilegast, ef krafizt er, að samþ. málmgraftarleyfis sé veitt með löggjöf, ef um stór fyrirtæki væri að ræða.