09.11.1939
Neðri deild: 56. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 265 í B-deild Alþingistíðinda. (768)

96. mál, verðlag á vörum

*Héðinn Valdimarsson:

Ég vil beina þeirri fyrirspurn til hæstv. ráðh., hvort ekki væri hægt að koma því þannig fyrir, að formaður verðlagsn. gæti haft þetta starf eingöngu. Það er kvartað um, hve afgreiðsla frá n. sé sein. Og það er ekki hægt úr því að bæta nema með því, að formaður n. eða einhver af nefndarmönnunum geti starfað að þessu máli eingöngu, einhvern tíma dagsins a. m. k.