08.12.1939
Efri deild: 79. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 382 í B-deild Alþingistíðinda. (911)

120. mál, stríðstryggingafélag skipshafna

Félmrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) :

Ég þakka n. fyrir afgreiðslu þessa máls.

Eins og hv. frsm. tók fram, hefir ekki ennþá borizt frá þeirri stj., sem skipuð hefir verið um stríðstryggingar, till. um smábreyt. á frv. Það er gert í samráði við mig, að draga ekki lengur, að málið komi í d. Ég átti í morgun tal við stj. stríðstryggingarfélagsins og vænti, að ég muni fá í dag til athugunar brtt., sem stj. leggur til, að gerðar verði. Ættu þær að geta komið fram við 3. umr. hér í d.