23.12.1939
Neðri deild: 91. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 384 í B-deild Alþingistíðinda. (922)

120. mál, stríðstryggingafélag skipshafna

Frsm. (Steingrímur Steinþórsson):

Fjhn. hefir haft þetta frv. um stríðstryggingafélag íslenzkra skipshafna til meðferðar og orðið ásátt um að leggja til, að það verði samþ. óbreytt.

Frv. kom frá hv. Ed., en var fyrst bráðabirgðal., sem ríkisstj. setti í haust, eftir að ófriðurinn brauzt út, sem voru síðan í frv.formi lögð fyrir Ed., og tóku þau þar nokkrum breyt.

Fjhn. þessarar d. hefir kynnt sér frv. en hefir ekki séð ástæðu til að gera neinar breyt. við það og leggur því til, að það verði samþ. óbreytt.