27.12.1939
Neðri deild: 94. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 387 í B-deild Alþingistíðinda. (937)
120. mál, stríðstryggingafélag skipshafna
Bergur Jónsson:
Ég vil bara benda á út af því, að hv. þm. V.-Sk. vitnaði í 64. gr. þingskapa, þar sem veitt er heimild til að bregða frá þingsköpum, að í þeirri gr. stendur svo, með leyfi hæstv. forseta: „Afbrigði mega þau ein vera, er eigi koma í bága við stjórnarskrána.“ Ef 48. gr. stjórnarskrárinnar er svo skilin eins og hæstv. 1. forseti d. hefir gert, þá hafa afbrigðin ekki verið réttilega samþ., af því að það kemur í bága við stjórnarskrána.