29.03.1940
Neðri deild: 25. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 440 í B-deild Alþingistíðinda. (1046)
41. mál, íþróttasjóður
Frsm. minni hl. (Jón Pálmason):
Mér þykir það undarlegt, að hv. 2. þm. Árn. skuli ennþá halda, að með þessari brtt. sé verið að ná inn fé, sem ekki sé fé ríkissjóðs. Það er sjálfsagt að hækka þessar vörur eins og verzlunarlegar ástæður leyfa á hverjum tíma. Nýlega hefir áfengi hækkað um svo sem 25%, og sé hægt að hækka meir, er hækkunin ríkisins og einskis annars. Þess vegna er tal hv. þm. um ósamræmi milli sparnaðar míns og andstöðu gegn brtt. tómur misskilningur.