29.03.1940
Neðri deild: 25. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 442 í B-deild Alþingistíðinda. (1053)

41. mál, íþróttasjóður

Pétur Ottesen:

Ég hefi áður hér í umr. um þetta mál gert grein fyrir því, að samkv. þeim skilningi, sem lagður er í íþróttal., er það líklega nokkuð yfir 100 þús. kr., sem nú er áætlað í fjárl. til íþróttasjóðs. Má af því marka, hvað sú upphæð, sem hér er um að ræða og á að binda starfsemi sjóðsins við 50 þús. kr., er miklu minni, að það er verið með þessari till. að stíga spor aftur á bak, a. m. k. um helming.